Daði Snær og Gulla amma að ræða saman um afmælisbarnið Auðunn Gunnar, 10.febrúar 2012
DS: Hvað er Auðunn orðinn gamall? GA: 36 ára DS: Vá amma, er hann orðinn eldri en þú!
Daði Snær og Agnes Lára að ræða saman um væntanlega Reykjavíkur ferð þess fyrrnefnda í byrjun desember 2011.
AL: Og með hverjum ætlarðu að fara í dýragarðinn í Reykjavík? DS: Tobbu og Auðunni og Fanneyju og Hafþóri...manstu eftir honum?
Daði Snær heyrði eitthvað væl í systur sinni og fór til að tékka á henni inni í rúmi seint um kvöldið 17.nóvember 2011
Mamma, litla vill bara koma fram, hún er bara staurvakandi!
Daði Snær og pabbi ræða klósettferðir þess fyrrnefnda 2. október 2011, en hann pissar iðulega vel mikið útfyrir!
Pabbi: Fyrst miðar maður í klósettið svo pissar maður DS: Ég var að gera það, typpið beygði bara!!!
Daði Snær og Agnes Lára að ræða saman í ágúst 2011
AL: Hvað heitir systir þín? DS: Katla Bryndís. Hún átti sko að heita Hulda en það var bara sagt vitlaust. En það er allt í lagi því þegar mamma er búin að borða of mikinn mat og þá kemur annað barn í magann og þá heitir hún bara Hulda...!
Litla systir var skírð 24.júlí 2011 og Daði Snær var mikið búinn að veltast með það hvað hún ætti eiginlega að heita og var kominn að niðurstöðu um að hann vildi að hún héti Hulda...
DS í kirkjunni: Agnes, þú sagðir vitlaust nafn...þú áttir að segja Hulda!
Pabbi og Daði Snær í bílnum á leiðinni heim eftir skírn Kötlu Bryndísar 24.júlí 2011:
Pabbi: Hvað ætlarðu að kalla hana? Kötlu Bryndísi, bara Kötlu eða bara Bryndísi? Hvað finnst þér best að segja? DS hugsar sig um og svarar síðan: Bryndís...en ég kalla hana samt bara Huldu!
Daði Snær og Gulla amma í flugvél á leiðinni frá Reykjavík til Ísafjarðar 28.mars 2011:
Gulla amma: Sjáðu nú erum við komin upp fyrir skýin DS: Já, erum við þá komin til kallsins? G-a: Hvaða kalls? DS: Æi þarna sem allt dána fólkið er!
Daði Snær að fræða krakkana á leikskólanum um undur lífsins 23.mars 2011:
Þegar konur borða mikinn mat þá breytist maturinn í barn!
Daði Snær og mamma fyrir svefninn 22.febrúar 2011:
M: Góða nótt ástin mín ég elska þig svoooooooo mikið
DS: Ég elska þig...þú ert dásamleg :)
Daði Snær og pabbi að hafa sig til fyrir háttinn 8.nóvember 2010:
DS er fullur af góðum hugmyndum sem hann viðrar oft við foreldra sína.
DS: Pabbi ég er með góða hugmynd. Þú burstar tennurnar þínar og ég bursta ekki tennurnar mínar!
Daði Snær og mamma 13.febrúar 2011
DS: Mamma, þegar barnið er komið úr maganum áttu að fara strax aftur í leikfimina þína!
(Drengnum líst greinilega ekki á letina í móður sinni eða aukakílóin sem fylgja meðgöngunni... :)
Daði Snær og pabbi í heimspekilegum umræðum, 24.október 2010:
DS: Pabbi, búttiru mig til?
Pabbi: Já
DS: Er ég tilbúinn?
Daði Snær og mamma á klósettinu, 23.janúar 2010
DS: Hvar er typpið þitt?
M: Ég er ekki með neitt typpi
DS með mjög hughreistandi tón: Kannski færðu typpi á morgun!
Daði Snær og mamma að lesa sögu fyrir svefninn 7.desember 2009:
Á myndinni var snigill að sniglast yfir stein. DS bendir á snigilinn og segir:
"Þarna er pizzasnúður"!
Daði Snær og Patrekur frændi, 8.nóvember 2009:
DS: Lísa! Lííísa...!
Patrekur: Já
DS: Þú heitir ekki Lísa. Þú heitir Pagugur...Papriku, þú ert grænmeti!
Daði Snær og mamma að fara með faðir vorið fyrir svefninn 6.nóvember 2009:
Mamma: Gef oss í dag vort daglegt brauð...
DS: og ristað brauð!