2.1.2011
20:51

Gleðilegt nýtt ár ...

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir Laughing

Litla fjölskyldan var stödd á Flateyrinni þegar árið 2010 var kvatt.  Borðuðum góðan mat og fórum síðan á brennuna...sem Daða Snæ fannst nú ekkert spes. Undecided  Hann var þvílíkt dúðaður í galla og snjógleraugu til að vera við öllu búinn, en það var nú alveg ágætt því það var ansi kalt að labba og svo fauk glóð af brennunni um allar trissur í þessu leiðinda roki sem var svo að það mátti þakka fyrir að það kviknaði ekki í manni!  Þá var mínum manni nú nóg boðið og ekki skánaði það þegar hann steig í læk þegar hann var að forða sér lengra frá brennunni...hann vildi bara fara heim og það strax!!!  Sagði svo þegar við vorum komin heim á Grundarstíginn "ég var bara næstum því dáinn á brennunni!"  Kannski svolítið dramatískur fannst mömmunni sem hló í leyni að þessari athugasemd Wink

En þetta var kannski lýsandi fyrir áhuga hans á þessum blessaða "sprengidegi" eins og hann kallar hann.  Sofnaði í sófanum yfir áramótaskaupinu og var síðan vakinn fyrir miðnættið þegar átti að fara út og sprengja gamla árið í burtu.  Hann vildi bara fara inn í rúm að sofa, enda svakalega þreyttur og lúinn.  Fór bara í náttföt en fylgdist þó nokkuð áhugasamur með úr eldhúsglugganum því sem fram fór úti.  Svo um leið og afinn og pabbinn komu inn aftur vildi hann bara klára að kyssa þetta lið gleðilegt nýtt ár svo að hann gæti komið sér í rúmið að sofa Laughing  sem hann svo gerði og var snöggur að sofna...svaf svo eins og steinn fram til hálf tíu næsta morgun.

Á nýjársdag var hann hins vegar ekkert nema áhuginn fyrir því að fara til Agnars afa og fá hjá honum nokkrar "sprengjur" til að sprengja...sem hann fékk.  Brenndi niður öll þau blys sem eftir voru en kom svo reyndar hlaupandi inn með tárin í augunum þegar Patrekur frændi hans kveikti í einni stórri sem hann var ekki alveg tilbúinn í og þá var nú gamanið bara búið Smile

Þannig voru nú þau áramótin hjá honum Daða Snæ...

Jæja, mamma ritari kveður að sinni  

25.12.2010
21:50

Jæja gleðileg jól a...

Jæja gleðileg jól allir saman.  Það er sko búið að vera mikið að gera hjá Daða Snæ í pakkamálum þessi jólin enda ekkert smá mikið af gjöfum sem drengurinn fékk...!

Ég setti inn nokkrar jólamyndir í desember albúmið

Bestu jólakveðjur

mamma ritari

7.12.2010
20:38

Ár síðan sí...

Ár síðan síðast...frekar lélegt!!!

Það hefur nú mikið gerst á þessu ári.  Fullt af ferðalögum til Reykjavíkur, Tálknafjarðar, í Borgarfjörðinn og ýmis skemmtilegheit.  Nú svo ákváðu foreldrar drengsins að gifta sig 28.08.10 ásamt því að flytja frá Flateyrinni yfir á Ísafjörðinn núna fyrir viku síðan eða svo.  Daði Snær gat því boðið öllum strákunum í miðhóp á leikskólanum í 4 ára afmælisveislu heim til sín eftir leikskóla á afmælisdaginn og það var sko stuð!  Tveir tímar voru feykinóg fannst mömmunni en var svo heppin að fá Agnesi stóru frænku til að koma og aðstoða og henni fannst tveir tímar með 6 fjögurra ára guttum líka alveg feykinóg...enda ekki ein dauð mínúta hjá svona gaurum Laughing

Nú svo er von á litlu systkini 28.maí 2011 og Daði Snær er voða ánægður með það, enda alveg ómögulegt að Kristín Salka frænka hans eigi bara lítinn bróður en hann ekki neitt! Wink  Hann er allavega mjög ánægður með þetta og segir öllum að það sé lítil stelpa þarna í maganum...sjáum til hversu sannspár hann reynist Smile

Annars höfum við nú verið eitthvað léleg með myndavélina uppá síðkastið en það eru einhverjar myndir til sem ég setti inn í gær.

Kveðja frá mömmu ritara

9.11.2009
21:10

Jæja nú er ég a&...

Jæja nú er ég að vinna í því að setja inn nýjar myndir...setti inn þær myndir sem ég átti á tölvunni minni en þarf svo að fá myndirnar af tölvunni hans Grétars líka. 

Ég bætti líka við einum undirflokk á forsíðuna, "gullkorn" því það er ekki annað hægt en að skrá niður það sem rennur upp úr honum þessa dagana, litla spekingnum okkar :)

Annars er allt gott að frétta af okkur.  Það styttist í 3ja ára afmælið hjá drengnum!!! Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...en hann syngur afmælissönginn í tíma og ótíma og sýnir og segir öllum þeim sem vilja hvað hann verður gamall 1.desember (og sýnir þá 3 putta :)  Svo má ekki baka köku hérna öðruvísi en að hann smelli á þeim nokkrum kertum sem hann sjálfur á að blása á!  Algjör krúttkall

Jæja segi þetta gott í bili reyni að koma myndunum af tölvunni hans Grétars inn sem fyrst

kv. mamma ritari

21.7.2009
00:42

Setti inn restina af myndunum sem &e...

Setti inn restina af myndunum sem ég er með í tölvunni...þarf svo að fara að hreinsa heilan helling af myndum af myndavélinni! 

Við erum komin í sumarfrí á leikskólanum og það er voða notalegt.  Daði Snær er voðalega bissí alla daga og dettur útaf dauðþreyttur á kvöldin og sefur frammeftir á morgnana...sem okkur finnst voðalega notalegt Smile  Síðustu helgi fórum við inn í Reykjanes í smá tjaldútilegu því þar var haldið stærðarinnar ættarmót.  DS svaf þá í fyrsta skipti í tjaldi og fannst það greinilega bara alveg ágætt því hann rumskaði ekki þótt sungið væri hástöfum og spilað á gítar beint fyrir framan tjaldið alveg til klukkan 5 um morguninn!!!  Svo vaknaði hann bara sprækur næsta morgun um hálf 10 leitið Laughing   Þar var farið 3 sinnum í sundlaugina góðu og alltaf þótti honum jafn leiðinlegt að fara uppúr þrátt fyrir að vera orðinn soðinn í gegn af heitu vatninu!!!

Á morgun ætlum við svo að kíkja aðeins uppí bústað og vera fram á helgi en þá ætla Kristín Salka og fylgifiskar að koma hingað vestur í sæluna svo að þá brunum við aftur vestur...við getum auðvitað ekki misst af þeirri heimsókn Laughing

Jæja nóg komið í bili, ritarinn orðinn eitthvað þreyttur og lúinn...

Góða nótt og sofið rótt

10.7.2009
23:36

Jæja hvar á að byrj...

Jæja hvar á að byrja?  Nokkuð hefur borið á athugasemdum í garð ritarans sem vægast sagt hefur verið slakur undanfarið! Embarassed En batnandi mönnum er best að lifa...er það ekki annars? Wink  Ég vil þó meina að þetta hafi verið Grétari að kenna þar sem hann hreinsaði allar myndir út af myndavélinni og setti í sína tölvu og þaðan og yfir á flakkarann sem er sérstaklega stilltur fyrir macintosh tölvur svo að ég gat ómögulega náð í þær sjálf! 

En því hefur verið reddað í kvöld og slatti af júní myndum í nýju júní albúmi komnar inn.

Annars er allt gott að frétta af okkur.  Daði Snær er í leikskólanum frá 8-14 á daginn en þá fær hann oftast nær að fara heim með ömmu sinni sem er einmitt búin að vinna líka kl.14 Smile  Mamman réð sig í sumarvinnu á leikskólann hans sem getur stundum verið erfitt fyrir lítinn mömmustrák en við hittumst nú reyndar ekki mikið þar svo að þetta reddast Smile  En það eru núna bara þrír dagar í næstu viku og þá erum við komin í sumarfrí í leikskólanum alveg fram í miðjan ágúst.  Við ætlum nú að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í fríinu okkar, fara í tjaldútilegu inn í Reykjanes, í bústaðinn í Borgarfirði og sumarhúsið á Tálknafirði, vonandi verður bara gott veður á þessum frítíma.  Það hefur nú verið ágætis veður hérna hjá okkur og suma síðustu daga bara mjög gott meira að segja.  DS hefur fengið nokkrum sinnum að vera berró hérna í garðinum með litla uppblásna sundlaug að sulla og þótt það alveg meiriháttar.  Mömmunni fannst hins vegar ekki alveg eins meiriháttar þegar drengurinn stökk útí hana eitt kvöldið í öllum fötunum þegar gleymdist að tæma úr henni vatnið...hann var sko að stökkva í sjóinn eins og Smári á sjómannadaginn!!!

Læt þetta gott heita í bili, og minni á gestabókina

10.5.2009
22:48

Jæja myndir frá Reykjav...

Jæja myndir frá Reykjavíkurförinni komnar inn...og þótt fyrr hefði verið!!!

Allt fínt að frétta héðan.  Daði Snær byrjar á leikskólanum á þriðjudaginn svo að þetta er bara alveg að bresta á.  Hann segist þó ekkert vilja fara á leikskóla, bara vera heima hjá mömmu Innocent En sjáum til hvort að honum snýst ekki hugur þegar hann fattar að það eru gaurar á hans aldri og mikið gaman og mikið fjör í leikskólanum Wink  Nú og ekki skemmir fyrir að kennarinn hans verður Steina frænka (ömmusystir hans) Laughing

Mamman er búin í prófum og þar af leiðandi skólagöngunni í þetta skiptið, það er að segja ef kennararnir hafa ekki fellt hana Surprised svo að nú þarf bara að fara og finna sér vinnu...það hlýtur að finnast eitthvað skemmtilegt og spennandi!

Annars erum við bara búin að vera að dúlla okkur þessa síðustu daga eftir að próflestri lauk.  Daði Snær var svo heppinn að fá þríhjól frá Kollu frænku sent heim að dyrum og hann kenndi sjálfum sér að hjóla á því samdægurs!  Það tók smá á taugarnar en honum datt ekki í hug að það væri hægt að nota hjólið á nokkurn annan hátt en með því að stíga á pedalana...svo að hann bara lærði það og hjólar hér um á fullu farti með hjálminn, auðvitað Laughing Eintóm gleði þar, hann vill helst sofa með hjólið uppí hjá sér en lætur sér nægja að hafa það á gólfinu inní herbergi!

Jæja, nóg komið í bili

Mamma ritari kveður að sinni og minnir á gestabókina okkar góðu!

23.4.2009
14:15

Jæja þá eru komna...

Jæja þá eru komnar nokkrar nýjar myndir og heill hellingur af myndum úr Reykjavíkurferðinni okkar síðustu helgi bíða líka...

Við fengum skíði á litla manninn og það sem hann er með þessi skíði á heilanum!!!  Hann myndi sofa í þeim ef hann mætti!  Hann fór nokkrum sinnum að æfa sig á skíðum yfir páskana og var bara ótrúlega fljótur að ná þessu, nær að beygja og stoppa svona af tilviljun en hann stendur og rennur alveg eins og hershöfðingi meira að segja þótt það séu einhverjar ósléttur og hólar!

Annars héldum við að við þyrftum bara að pakka skíðunum niður og öðrum slíkum vetrargræjum því það var komið svo mikið vor hérna og allt orðið autt.  En í dag, sumardaginn fyrsta, vöknuðum við með hvíta jörð og það hefur snjóað í allan dag svo að við getum kannski bara dregið þessar vetrargræjur aftur fram!!!

Héðan er bara fínt að frétta þrátt fyrir leiðinlegt veður í dag.  Við fórum suður um síðustu helgi.  DS var alveg eins og engill í bílnum, heyrðist bara varla í honum.  Fyrir sunnan fórum við svo í húsdýragarðinn og í sund í vatnaveröldinni, heimsókn til Amalíu og Salvars Óla og auðvitað Kristínar Sölku líka.  Svo að þetta var sannkölluð skemmtiferð fyrir lítinn mann!   

Nú svo er Patrekur að fermast eftir nokkra daga og vonandi fáum við boð um að byrja í aðlögun á leikskólanum fljótlega.  Skólinn fer að verða búinn hjá mömmunni svo að það er ýmislegt frammundan hjá okkur.

Ritarinn lætur þetta gott heita í bili og minnir á gestabókina fyrir þá sem kíkja hérna við hjá okkur

4.4.2009
22:49

Eitthvað hefur vefdagb&oacu...

Eitthvað hefur vefdagbókin okkar fengið að sitja á hakanum Undecided en ég hef nú munað eftir að setja inn myndir svona við og við...

Héðan er allt gott að frétta, páskarnir að renna í garð og þá koma Hólmar, Tinna, Rakel og Ari hingað á Eyrina til okkar svo að það er mikil tilhlökkun...fyrir utan alla hina auðvitað sem koma líka vestur Laughing alltaf gaman að fá fólkið heim.

Ég tók að mér að vera afleysari á leikskólanum Bakkaskjól um daginn og það var bara ágætt að komast aðeins út, þótt að það hafi vissulega viðbrigði að þurfa allt í einu að vakna kl. sjö og vinna með hóp af börnum í 8 tíma (kellan orðin eitthvað ryðguð hmmm...) en gaman engu að síður.  Daði Snær fékk að koma með einn daginn, en hann var nú ekkert alveg viss um þetta drengurinn.  Vældi meira og minna allan tímann á meðan hann var vakandi Embarassed  Hélt að ég ætlaði að skilja hann þarna eftir hjá öllu þessu ókunnuga fólki, svo þegar hann áttaði sig á að það var ekki planið var hann ekki að fíla það þegar önnur börn voru að koma nálægt mömmu HANS og svo fyllti það alveg mælinn þegar hún hlýddi ekki öllum hans köllum í útiverunni og hann alveg búinn á því af þreytu svo að hann bað bara um að fá að lúlla og gólaði lúlla, lúlla þar til hann fékk að fara inn á dýnu og lúlla.  Rétt gaf sér tíma til að hella í sig einum disk af kjötsúpu áður en hann henti sér inn á dýnu og sofnaði.  Svo kom Hafþór á afabíl og náði í hann þegar hann vaknaði og þá var minn maður nú ánægður með lífið Laughing

Annars er það nú helst að frétta að Daði Snær er kominn með LEIKSKÓLAPLÁSS Laughing á leikskólanum Eyrarskjóli takk fyrir pent!  Og mikið erum við nú glöð yfir því, loksins kom að því að við fengum bréf í pósti svo nú bara bíðum við eftir símtali til að fá að vita hvenær hann getur byrjað í aðlögun.  Það held ég að verði nú gaman fyrir guttann að komast aftur í almennilega rútínu og leik með gaurum á hans aldri Smile 

Annars virðist hann nú ekkert hafa skaðast af þessum leikskólalausa tíma síðan um miðjan desember Wink hann er farinn að tala helling, skilningurinn alveg ótrúlegur og alltaf að bætast við orð og setningarnar lengjast með hverjum deginum.  Hann sat hérna í sófanum hjá mér í kvöld og horfði á latabæ (en ekki hvað!!!) svo var kominn háttatími svo að ég birtist með tannburstann og sagði að nú þyrfti að bursta tennurnar, sem hann btw þoooolir ekki, það er yfirleitt eins og verið sé að slíta af honum útlim þegar tennurnar eru burstaðar!  Hann byrjaði á því að halda fyrir munninn þegar hann sá tannburstann svo þegar ég minnti hann á að hann hefði nú fengið að smakka eitthvað smá nammi hjá henni Agnesi í dag þá svaraði minn maður bara: "nei, borða ávexti!" Innocent  Þá skellihló bara mamman en hann hélt sínum sakleysissvip og endurtók: "borða ávexti!"  Þeir eru jú svo hollir að maður hlýtur að komast hjá því að bursta tennurnar ef maður segist bara borða svoleiðis! Wink skýr strákur

En ég veit ekki hvernig verður með uppfærslu síðunnar næstu dagana því ég er að skrifa tvær ritgerðir og svo er hlutapróf í lok mánaðar, 10 bls. þýðingarverkefni og lokapróf 4.maí!  En eftir það er ég laus...þar til ég finn mér einhverja vinnu það er að segja...

Jæja nóg komið í bili, ritarinn ætlar að nýta þá orku sem eftir er til þess að lesa í námsbókum...ekki veitir af!

Góða nótt og sofið rótt

23.2.2009
22:25

Jæja þá eru komna...

Jæja þá eru komnar nýjar myndir...í nýtt febrúar-albúm...ekki seinna vænna því það er nú bara að koma mars í næstu viku!!!

Annars er það helst að frétta hjá okkur að Daði Snær fékk að fara í bíó í fyrsta skiptið og sjá myndina þeirra Skoppu og Skrítlu Laughing  Við vorum spennt að fá að vita hvernig þessi bíóferð myndi fara þar sem hann er nú ekkert mikið fyrir það að sitja kyrr þessi elska Wink en hvað haldiði?  Okkar maður sat eins og engill allan tímann, fékk popp og trópí og var svona þvílíkt sáttur.  Sat meira að segja í sér sæti á milli foreldra sinna og hafði það bara notalegt Innocent  Skoppa kom og heilsaði upp á bíógestina fyrir sýningu og var DS ekki alveg viss fyrst hvort að hann treysti þessari skrítnu Skoppu sem var að tala við hann.  Auðvitað gleymdist myndavélin heima Frown svo að ég gat bara tekið mynd af þeim saman á símann minn...en það verður bara að hafa það!  Svo söng hún nokkur lög og svona fyrir krakkana svo að þetta var allt saman mjög skemmtilegt.

Við erum svo búin að fara aftur á bókasafnið og fá nýjar bækur og ný ævintýri að hlusta á, íþróttaskólinn er enn í gangi á laugardögum og svo áðan fórum við yfir á Ísafjörð að maska! Laughing  Ég var nú ekki viss um að hann væri nokkuð spenntur fyrir þessu þar sem hann hefur nú aldrei upplifað svona áður, en hann vildi ólmur vera í kanínubúningnum sínum og söng fyrir nammi hjá nokkrum vel völdum aðilum víðsvegar um bæinn Laughing  Hann var sko ekkert lítið sáttur við nammiaflann og fékk meira að segja að smakka smá af honum þegar heim kom með góðfúslegu leyfi frá foreldrunum Surprised  haldiði að það sé spilling!!!

Jamm og jæja, svo er það bara næst á dagskrá að bruna suður á fimmtudaginn og heimsækja fólkið okkar þar sem við söknum svo mikið!

Mamma ritari býður bara góða nótt og minnir á gestabókina okkar góðu!

 

13.2.2009
22:59

Ojæja...þá t&oacu...

Ojæja...þá tókst ritaranum ofvirka...eða frekar óvirka...að setja inn síðustu myndir janúaralbúmsins!  Þvílíkt afrek!  Myndirnar hlóðust nefninlega á einhvern undarlegan hátt inn á tölvuna í þetta skiptið og voru allar í öfugri tímaröð og hver dagur réttur svo að þetta var allt þvers og kruss...einmitt það sem svona duglegir ritarar þurftu á að halda! {#emotions_dlg.yell}

En þetta hafðist að lokum!  Héðan er annars allt ágætt að frétta, búið að vera frekar kalt undanfarið svo að við höfum verið frekar löt við að fara út að leika, en höfum þá bara reynt að fara meira út af heimilinu í heimsóknir og svona í staðinn.  Við fórum t.d í útikaffi á Eyrarskjóli á föstudaginn í síðustu viku og það var sko svakalega gaman, heitt kakó í stórum potti og piparkökur {#emotions_dlg.laughing} okkar maður var sko sáttur við það!  Svo er hann ansi góður í að plata Hafþór frænda sinn til að fara með sig örlitla rúnta á snjósleðanum sem er alltaf staðsettur þarna á bílastæðinu hjá ömmunni og afanum í Hafraholtinu!  Drengurinn er vægast sagt með þennan snjósleða á heilanum og getur ekki farið inn fyrir hússins dyr fyrr en hann hefur sest aðeins á sleðann í hvert einasta skipti sem við förum þangað...og það er nánast daglega!!!  Svo talar hann um sleðann á hverjum degi líka, svo að það er óhætt að segja að þessi blessaði snjósleði eigi allan hans hug um þessar mundir!

Nú svo kíktum við á bókasafnið í gær og fengum eina bók og tvo geisladiska með sögum á í láni.  Skíði höfum við enn ekki fundið en Alma var svo góð að lána okkur litla skíðaklossa á orminn svo að vonandi getum við bráðum farið að kíkja upp í brekku, en hann hefur alltaf jafn gaman af því að fylgjast með krökkunum skíða í hvert skipti sem við keyrum framhjá skíðasvæðinu.  Vonandi vonandi tekst okkur að útvega skíði fyrir páskana og skíðavikuna miklu, ef einhver á eða veit um þá endilega láta okkur vita! {#emotions_dlg.wink}  Því þessar græjur kosta litlar 25þúsund íslenskar krónur útí búð, 25þúsund íslenskar krónur sem við eigum eiginlega ekki!

Í lok mánaðar ætlum við svo að skella okkur suður því hún Kristín Salka okkar verður 2ja ára þá og að sjálfsögðu mætum við til að heiðra hana á þeim merka degi {#emotions_dlg.laughing}  Það verður nú gaman fyrir þau að hittast, enda ekki hægt að láta þau bara tala saman í síma...sem þau reyndar gera alveg nokkuð oft!  Mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim símtölum {#emotions_dlg.laughing}

Jæja, komið gott í bili

Mamma ritari kveður að sinni og minnir á GESTABÓKINA

22.1.2009
23:38

Jæja nokkrar nýjar myn...

Jæja nokkrar nýjar myndir komnar inn.

Héðan er mest lítið að frétta, ekkert leikskólapláss komið enn Undecided því miður.  Aumingjans barnið þarf að hanga með foreldrunum allan sólarhringinn...hittir þó ömmur og afa og frændsystkini líka, en það er nú ekkert hægt að líkja því við leikskóladvöl! 

Annars fórum við reyndar í fyrsta tímann í íþróttaskólanum á laugardaginn síðasta og það var mikið gaman.  Þar hittum við Heiðu Dögg, Guðmund Brynjar og Láru Björgu og vorum með þeim í hóp í "stöðvarþjálfun" Laughing  Daði Snær var voðalega flinkur og gerði sko allt sem átti að gera!  Svo fengu allir epli í lok tímans og það hitti sko alveg í mark hjá okkar manni sem át það sko upp til agna...Grétar náði að nappa af honum eplinu rétt til þess að bíta kjarnann úr því, annars rann það allt ljúflega niður í íþróttamanninn Laughing  Því miður gleymdist alveg að taka myndir af íþróttahetjunni en við reynum bara að muna eftir því næst!

Við bíðum spennt eftir næsta tíma sem verður á laugardaginn...vonum bara að veðrið verði ekki svo slæmt að við komumst ekki yfir á Ísafjörð, en hérna er ekkert voðalega spennandi veður og veðurspáin ekkert spennandi fyrir föstudag og laugardag skilst mér! En við vonum það besta

Jæja, mamma ritari kveður að sinni og minnir auðvitað á gestabókina okkar góðu!

10.1.2009
15:01

Setti inn nýtt janúar...

Setti inn nýtt janúar albúm... og auðvitað nýjar myndir í það Smile

Allir að kvitta í gestabóknina fyrir skoðið á þeim!

8.1.2009
22:53

Úff þessi sjálf...

Úff þessi sjálfskipaði ritari er ekki alveg að standa sig í uppihaldi á þessari síðu...

En það sem er helst að frétta af okkur er að við erum svo gott sem búin að koma okkur fyrir hérna í höllinni í Ólafstúninu Laughing  Erum reyndar öll í fríi ennþá, skólinn ekki byrjaður hjá mér og Grétar enn í atvinnuhugleiðingum.  Daði Snær er því miður ekki enn kominn með pláss á leikskóla enn við vonum það besta að hann komist að sem fyrst því hann þarf svo sannarlega á því að halda að fá að umgangast aðra krakka og já...komast aðeins frá foreldrum sínum Embarassed 

En við erum allavega búin að skrá hann á íþróttanámskeið sem byrjar núna 17. janúar og stendur í alveg 10 vikur, á laugardagsmorgnum kl.11 Laughing  Það held ég nú að verði gaman fyrir svona orkubolta að fá að rasa aðeins út með öðrum púkum!

Já, annars er nú mest lítið að frétta af okkur, bara dúllerí alla daga, ömmu og afa heimsóknir, útivera og sund er svona það helsta sem við höfum verið að brasa...og svo var auðvitað hún Agnes besta frænka hérna í gistingu hjá okkur síðustu helgi og það var sko ekki leiðinlegt.  Hann lifði reyndar í voninni um að hún væri sofandi á vindsænginni í gestaherberginu þegar maður fór frammúr með hann fyrstu morgnana í vikunni Laughing "Agnes?" heyrðist og svo var kíkt inn í herbergið en þar var enginn! 

Sjálfur er hann í svefn-aðlögun í sínu herbergi.  Hefur sofið uppí síðustu vikurnar og finnst það bara vera sinn svefnstaður!  Foreldrarnir eru ekki alveg á sama máli, allavega ekki mamman sem er komin með bauga niður á hné vegna svefnleysis! (eða svona hérumbil Wink ).  Þegar við komum hingað vestur beið þetta svakalega fína stóru-stráka-rúm eftir honum uppábúið hjá ömmunni og afanum í Hafraholtinu og það var sko fyrir hann til að eiga!  Við vorum auðvitað alveg himinlifandi yfir því að fá svona fína gjöf því það voru búnar að vera vangaveltur um nýtt rúm fyrir gorminn þegar vestur kæmi...rimlarúmið með eina hlið skrúfaða af var jú bara svona til reddingar fyrst um sinn.  Hann svaf í því eins og hann hefði ekki gert annað...þangað til við fluttumst í nýja húsið þá hætti hann því bara og fór að vakna á kvöldin og sofa það sem eftir lifði nætur í mömmu og pabba rúmi!!!  Svefntíminn var reyndar líka í frekar miklu rugli yfir hátíðarnar...en nú er semsagt verið að taka á þessum málum...og svaf hann alveg til 6 í morgun í sínu rúmi svo að þetta er vonandi eitthvað í áttina.

O, jæja nóg komið í bili.  Það voru settar inn myndir frá jólum og áramótum í desember-albúmið en það er nú til slatti af myndum sem koma í nýtt janúar-albúm...á morgun ef ritarinn verður mjög nenninn Wink

Mamma ritari kveður að sinni og býður góða nótt   

27.12.2008
15:59

Það er verið að v...

Það er verið að vinna í þessu Laughing fréttir síðar...

Síðar:  Jæja, þá er loksins búið að setja inn einhverjar jólamyndir.  Við eigum reyndar mikið fleiri myndir, af þeim frændsystkinum saman þegar Kristín Salka kom í kvöldpössun til okkar eitt kvöldið áður en við fluttum.  Það var sko gaman fyrir litla gorma.  Borðuðu pizzu og horfðu á latabæ og ég veit ekki hvað og hvað.  Þar bara að finna þær myndir og setja inn, þær eru alveg yndislegar Laughing

Annars er það auðvitað helst að frétta af okkur að við erum flutt út borginni, úr Grafarholtinu og alla leið vestur á Flateyri takk fyrir pent!  Erum búin að vera eins og prinsessan á bauninni hjá mömmu og pabba yfir jólin, en ætlum að sofa fyrstu nóttina í nýja húsinu núna í nótt...laugardagur til lukku er það ekki? Laughing

Við erum búin að hafa það alveg glimrandi gott hérna síðan við komum rétt fyrir jólin, hitta fullt af fólki og fara í aaaaðeins of margar veislur, svo margar að það liggur við rúmlegu af áti!!!  Pakkaflóðið var auðvitað sérdeilis stórt að vanda og sendum við RISA þakkir til allra...takk fyrir okkur!

Jæja einn brjálaður maður stendur hérna á öskrinu og heimtar að ritarinn komi STRAX að borða pizzu! Best að hlýða kallinu!

Mamma ritari kveður að sinni